Forsíða > Fréttir  

FORSÍÐA

UM FJÁRSTOÐ

MARKMIÐ

STARFSMENN

ÚTVISTUN

SPURT OG SVARAÐ

FRÉTTIR

HAFÐU SAMBAND

STARFSTÆKIFÆRI

Tenglar

Fréttir

12.4.2008 18:55:27
Ný vefsíða og flutningurinn

Þegar framkvæmdastjóri tilkynnti stafsmönnum á fundi vorið 2006 að ákveðið væri að fyrirtækið flytti starfsemi sína að Smáratorgi 3, þar sem flestir höfðu heyrt af að ætti að rísa 20 hæða bygging, þótti mönnum góður fyrirvari á flutningum og engin ástæða til að gera sér rellu út af því strax.
En fyrr en varði var haustið 2007 runnið upp og spennan jókst, ekki síst þegar ýmsar sögusagnir fóru að berast af seinkun framkvæmda við Turninn. Haustið leið, komið var fram á vetur og starfsmenn sem heyrðu úrtöluraddir úr ýmsum áttum, höfðu talsverðar efasemdir um að flutt yrði inn á árinu en þó enn meiri efasemdir um að það væri hentugt að flytja inn í upphafi næsta árs á mesta annatíma fyrirtækisins.

Eftir að flutningi hafði verið frestað frá október til nóvember og síðan aftur að miðjum desember var framkvæmdastjóra tjáð á fundi viku áður en flutningur átti að eiga sér staða að vegna skorts á iðnaðarmönnum væri ekki hægt að flytja á tilsettum tíma heldur yrðum við að bíða þar til 20. desember eftir afhendingu húsnæðisins.  Hún sem  hafði þó eins og aðrir starfsmenn hafði hugsað sér að eyða síðustu helginn fyrir jól í annað en standa í flutningum tók þessu ósinnt upp og lagði af stað í leit að dúklagningarmönnum sem væru tilbúnir að leggja á gólfin í nýja húsnæðinu. Ekki þarf að orðlengja það að tveimur dögum seinna voru harðduglegir dúkarar byrjaðir að líma á gólfin á tæpilega fokheldri hæðinni.

  

Fast á hæla þeim kom vösk sveit aðstoðarmanna framkvæmdastjóra og skrúfaði saman skrifborðin á hverri vinnustöð. Ekki var þó hægt að leggja gólfefni á alla hæðina þar sem ein hlið hússins var ekki orðin vatnsheld og það ringdi þessa daga eins og hellt væri úr fötu

 

 Á meðan á þessu stóð röðuðu starfsmenn niður bókhaldsgögnum í hvern kassann á fætur öðrum og hugsuðu þeim sem ekki höfðu komið ,,gömlum” gögnum út til viðskiptavina þegjandi þörfina. 

   

Þegar laugardagurinn 15. desember rann upp var allt komið í kassa og flutningur hófst samkvæmt áætlun. Veðurguðirnir tóku örstutt rigningarhlé rétt á meðan verið var að bera kassana út úr húsi, sem betur fer því raki og bókhaldsgögn eiga litla samleið.

   

Þegar starfsmenn mættu síðan til vinnu á mánudag var megnið af gögnunum komið upp á hæðina, eitt salerni hafði tekist að tengja og ein lyfta var í notkun. Þar sem þessi eina lyfta þurfti að anna bæði iðnaðarmönnum með vélar og verkfæri sem og starfsfólki Fjárstoðar var oftast það löng bið eftir henni að starfsmenn æfðu sig í stigahlaupi í stað þess að standa og bíða.

 

Nokkrum dögum eftir flutninginn tók svo húsnæðið að taka á sig endanlega mynd þegar hafist var handa við að loka þeim lyftuopum sem enn stóðu opin, setja hurðar fyrir stigaganga og ganga frá loftplötum.  Bráðabirgðahurðir settar upp

Ekki gengu þó verkin hraðar en svo að starfsmenn urðu þeirrar ánægju aðnjótandi að hafa málara, rafvirkja, smiði og pípulagningamenn gangandi um hæðina með tæki og áhöld næstu mánuði. Að ótöldum þeim fjölda sem sveif upp og niður utan við gluggana eins og englar með öryggishjálma oft á dag. 

 

Allt tekur enda um síðir og nú um sumarmál sést varla iðnaðarmaður á hæðinni, hamarshögg og borvélaurr er þagnað, búið að taka vinnulyfturnar utan á húsinu niður svo enginn hrekkur við að sjá andlit gægjast upp fyrir gluggakarminn á 6. hæð eða sígvélaða fætur síga niður úr skýjunum og ekki laust við að örlítill söknuður geri vart við þegar hversdagslífið er farið að taka á sig fasta mynd.

Starfsmenn hafa nú úr 5 lyftum að velja þegar þeir þurfa að fara á milli hæða, hádegisverðarstaðurinn á 19 hæð er orðinn öllum aðgengilegur og fáir vinnustaðir státa af ,,mötuneyti” með betra útsýni, en þó hádegisverðarhlaðborðið sé fjölbreytt og frammúrskarandi matur veður sjálfsagt mörgum okkar þó fyrsta máltíðin í Turninum eftirminnilegust. Humarsúpan sem boðið var upp á á 19 hæðinni í byrjuðum janúar þegar stormurinn stóð inn um gluggana á óglerjaðri 20. hæðinni niður um alla stigaganga var lostæti sem yljaði niður í tær. 


 Til baka
september 2010
s m þ m f f l
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2

Fjárstoð ehf. | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi | Sími 556 6000 | Fax: 556 6001 | fjarstod@fjarstod.is